*Tinna down town L.A*
Klukkan
11.12.2007 12:22:27 / tinna

,,Já sæll,,

Jæja kannski komin tími á að blogga á þetta blogg mitt. Eina ástæðan er að því að hún Thelma vinkona var að byrja með blogg og meina gat ekki látið kellluna eina um þetta ;Þ


Hvar á ég að byrja. Er búin að kaupa mér bíl. Toyta AYGO. Rosa sætur bíll :) Henntar mér rosa vel. Núna þegar ég er búin að hafa hann í ca mánuð er ég ekki að ná því hvernig ég gat verið án bíls!!! Samt er þetta allveg nettur kostnaður. Vil helst ekki fara að leggja saman hvað ég er búið að eyða í hann. Tryggingar og svona. ..... en meina, það kostar bara að eiga bíl.


En já síðan er ég bara að vinna, og vinna meira. Núna á föstudaginn byrjar að vera opið til kl 22 í bænum. Er að vinna til skiptis til kl 22. Þannig hef smá tíma til að kaupa jólagjafir. Er ekki byrjuð. Eða jú búin að kaupa eina, af svona 10. ohh.. nenni bara ekki að byrja á þessu. Eða sko það er allveg gaman að kaupa jólagjafir en bara að drífa sig á stað er svo leiðilegt. Var eitthvað að reyna í gær að vera rosa skipulögð og bjó til lista yfir hvað ég ætla að gefa öllum. Sat geðveikt lengi að skifa hann og hugsa hvað henntaði hverjum og einum nema þegar ég kom heim áttaði ég á mig að ég hafði óvart hennt honum þegar ég var í vinnunni að taka til :/ Góð.


Síðan eru allir að fara koma heim. Núna í næstu viku koma Salvör og Hulda. Var svo gaman í fyrra að koma heim. Held að það hafi bara verið skemmtilegustu jólin, eða ein af þeim bestu :)

Seinasta helgi var seinasta frí helgin mín fram að jólum. Gerði reyndar ekkert. Svaf og át. Mamma var að kaupa svona súkkulaði konfekt vél þannig ég og Áslaug misstum okkur pínu í henni. Held að ég hafi étið svona 500 g af súkkulaði um helgina.

Fór reyndar í Smárann á sunnudaginn. Það var fínt. Mikið af fólki. Held að ég hafi komið þangað fyrir svona 2 mánuðum seinast. Er allveg hætt að fara í smárann og Kringluna. Finnst miklu meiri jólastemming á laugaveginum ;Þ

En já vil líka þakka Helgu fyrir rosa góðan Helgu og Tinnu dag í gær ;Þ Fórum á Eldsmiðjuna og síðan í bíó. Fórum á Den in Real live. Var bara rosa fín. Mæli með henni.

 

En jæja er farin að reyna að vinna eitthvað..

Kv. Tinna


» 3 hafa sagt sína skoðun

06.08.2007 21:49:12 / tinna

Bla...

Ok.. svona frekar langt síðan ég bloggaði síðast. Kannski að maður skrifi nokkrar línur. Hef nú ekki verið að gera mikið. Bara vinna og vinna. Sem mér finnst reyndar bara fínt. Ekki slæmt að make money:þ Hef líka verið dugleg að fara í bæinn. Er allveg búin að taka sumar djammið á þetta. Var reyndar bara róleg um þessa helgi. Var í fríi alla helgina og gerði ekki neitt. Svaf og svaf. En síðan er það djamm næstu helgi. Er reyndar að vinna en læt það nú ekki stoppa mig. Gay p. og svonna. En jú kíkti reyndar út í gær en var edrú. Er svoo fyndið að fara edrú í bæinn. Fæ alltaf smá kjánahroll. Allir eitthvað svo .... bla.. Guð ef ég mundi sjá hvernig ég er á djamminu er ég vissum að ég mundi nú örugglega taka smá pásu ;) Eða þannig.... En í gær hittumst við hjá Huldu, ég, Telma, Heiðrún og Helga. Vorum allar bara léttar og því. Og helmingurinn edrú. Jabb.. er svo stolt af okkur. En um ca. 2 fórum við í bæinn. Og vá hvað var ungt fólk í bænum. Fannst ég vera hundgömul. Meina þetta voru krakkar á aldri sysur minnar en hún er 16 ára. Kannski er verið að sýna manni að maður eigi að fara að hætta þessu eða eitthvað.... Æjj veit það ekki. Síðan er haustið eiginlega komið. Sumarið búið. Finnst það samt allt í lagi, er allveg kósý að hafa dimmt á kvöldin og svonna. En er farin að horfa á tv. Tinna

» 4 hafa sagt sína skoðun

05.07.2007 15:03:12 / tinna

Ég er á lífi

Ok vá langt síðan ég hef bloggið. Hefur bara verið fáranlega mikið að gera. Nenni ekki að fara að telja upp allt sem hefur verið að ganga á en hérna kemur það samt í fáum dráttum :Þ Fór náttlega til spánar 3 júni og var í 3 vikur. Kom heim 22 júni. Það var allveg frábært. Rosa gaman. Langt síðan ég hafði farið í svona fjölskyldufrí. Síðan ég kom heim hef ég bara verið að vinna og omm djamma :Þ Jabb. Það er náttlega bara skylda að fara á sumardjamm. Þetta er í lögunum. Þessi helgi sem var að líða var rosa skemmtileg. Var æðislegt veður og svonna. Annars er nú ekki mikið að frétta. Er ekki að fatta að það sé komin júlí. Finnst eins og ég sé ný komin frá LA. Tíminn líður svo hratt. Skellti nokkrum myndum inn á myndasíðuna um daginn. En jæja er farin að laga til í herberginu :/ Tinna

» 1 hafa sagt sína skoðun

28.05.2007 20:12:51 / tinna

,,Ohh no, ég trúi þessu ekki,,

Ok.... komin tími á nýtt blogg. Eins og flestir vita er ég komin heim. Búin að vera heima í viku. Finnst samt eins og ég hafi í raun ekki farið. Ekki mikið að frétta svo sem. Er byrjuð að vinna sem er ágætt. Fór samt út á land í nokkra daga að vinna í photoshoti sem var fínt. Smá sjokk að fara úr 40 C stiga hita í snjó og harða norðan átt. Er ennþá að reyna að klára að taka upp úr töskunum en það var eins og það hefði verið fataspreyngja í herberginu mínu. Sást ekki í gólfið. Síðan núna um helgina fór ég í afmæli til Svövu en það var rosa gaman. Svona fyrsta ísl sumar djammið mitt. Sumarið er svo skemmtilegur tími. Sérstaklega þegar það er logn og sumar :Þ Síðan í gær gerði ég nú ekki mikið. Fór reyndar í bíó með Salvöru og Helgu. Skelltum okkur á þá rosa góðu mynd It´s a boy - girl thing. Var bara nokkuð góð eða svona miða við svona mynd :Þ Síðan er náttlega vika í Spán. Hugsa sér ég er að fara til spánar eftir viku. Verðum í rosa flottari Villu í Alfamar. Einka sundlaug og svona. Frekar næs :Þ Verðum í 3 vikur. Á samt eftir að klára að pakka upp úr LA töskunum til þess að geta pakkað fyrir spánarferðina. En er farin að skella frönsku súkkulaði kökunni inn í ofn. Thelma og Laufey að koma í heimsókn. Love Tinna p.s. Þó ég sé komin tímabundið heim hérna á klakann ætla samt að halda áfram að blogga :)

» 3 hafa sagt sína skoðun

16.05.2007 02:05:21 / tinna

Las Vegas babe ...

Jæja.. Þá er maður búin að fara til Las Vegas. Var svoooo gaman. Vil bara byrja á að þakka Helgu og Helgu fyrir frábæra ferð. En já þannig ég reki nú ,, the rodetrip,, Vaknaði klukkan 7 á laugadaginn en um kl 8:45 kom Helga að ná í mig og við fórum og keyptum snakk fyrir ferðina. Síðan fórum við til Helgu en við ákváðum að fara á nýja bílnum hennar. Síðan byrjaði the rode trip :Þ Vorum ca 4 tíma á leiðinni. Var svo gaman. Líka gaman að sjá eyðimörkina og keyra fram hjá The trailer trash og svonna. Og nokkrum , The Hills have eyes , bensínstöðum :Þ Ohh þetta var svo gaman. Veðrið var líka yndislegt, reyndar fór upp í 45 C á ákveðnum stöðum í eyðimörkinni. En við vorum heldur ekkert mikið að fara út úr bílnum Um kukkan 14 keyrðum við inn í Vegas. Verð að viðurkenna það , að Vegas eru í raun tvær borgir. Því Vegas um daginn er alls ekki eins og Vegas um kvöldin :Þ En jæja , þetta var rosa flott og allt náttlega ROSA stórt , sá sem sagði að allt sé big in Vegas hitta naglann á höfðuðið. Vorum frekar svangar þannig við ákváðum að fara á The Hooters að borða Hhahahhahha... jabb, var svo fyndið að koma þarna inn. Það er sko Hooters Hotel með öllu. Verð samt að segja að þær sem vinna á Hooters hérna í LA eru nú flottari en þær í Las Vegas. Ekki það að ég sé að stunda þessa staði hahaha. Er líka að segja ykkur það. Var svoo gott að fá kaldan bjór. úff.. En ok síðan fórum við á Hotelið okkar. En það var THE flottasta hotelið. Heitir The Venetian en þemað er Venes. Öll hotelin eru nefnilega með svona þema. En VÁ hotelið var svo flott. Vá ... og stórt. Meina GOD..... Það sem var líka skemmtilegt við þessa ferð var að við fengum svona Gull kort en þetta þýddi að við vorum V.I.P inn alls staðar og ég er ekki að tala um ísl V.I.P. Bullshit .. heldur the real thing. Fórum inn í svona ,stofu,, sem við gátum tekkað okkur strax inn og þar fengum við the Gold card. Síðan fórum við upp í herbergið okkar sem var ekkert venjulegt herbergi heldur The svít... Ohh yes babe. Vorum í svítu. Var svo flott og stór. God meina mig langaði að sofa inni á baðgerberginu. Eftir að hafa komið okkur fyrir og svona ákváðum við að fara í laugina. úuuuu vá var svo næs. Og hún var svo flott. Lágum þarna í sólinn, svo gott. Fekk líka besta Moitios sem ég hef fengið. Held að við höfum verið þarna til kl 19. En það var ennþá sól og ca 23 stiga hiti. Þetta er náttlega í eyðimörkinni. En jabb við vorum annsi hressar eftir þessar ,, nokkra, moitios. Ætla ekki fara út í of mikil smá atriði en við fórum að undirbúa okkar fyrir kvöldið. Um kl 22 vorum við síðan tilbúnar að fara. Fórum á fína stað sem var á Hotelinu. En þarf var einni drukkið nokkar moitios. Á hotelinu er einn af heitustu klúbbnum í dag, TAO en þetta er The pace og er ég að segja ykkur það röðin var svoooooooooooo löng o my god. Meina sko hef aldrei séð röð svona langa. Var líka frekar fyndið. Gengum fram hjá henni og ein stelpan var að tala um að þetta væri gestalista röðin hin væri úti. Við bara nei , kíktum út. O my god. ... Shit ok. Ok við bara nei, við erum ekki að fara bíða í röð. Við rölltum í afgreiðsluna og spurðum hvort það væri eitthverjir aðrir góðir klúbbar þarna, nema gaurinn vissi af okkur og segir okkur að flygja sér. Við bara ok. Fórum með honum og hann fer að röðinni og kinkar kölli til gauranna sem voru að þarna og við bara gegnum inn. Hhaah var eitthvað svo fyndi. klúbburinn var rosa flottur. Mjög flottur reyndar. Maður sá svona nokkur þekkt andlit. Við skemmtum okkar svo vel. Vorum reyndar ekkert það lengi en eftir á fórum við Helga í göngu túr á ,,the Strip,,. Var svo heitt og gott úti og skiltin, var svo að fíla Vegas. Skemmti mér svo vel. Daginn eftir vöknuðum við svo ferskar og sætar og ákvaðum að skella okkar í slökun við laugina. Elska þetta hotel. Síðan um kl 2 lögðum við á stað í bæinn. Já gleymdi að segja. Við gömbluðum smá , var allvega að fíla mig, leið eins og ég væri í Casino Royal :Þ En já þetta var svooo skemmtileg ferð. Ef ég ætti að skrifa allt sem gerðist væri ég heilan dag að blogga .. þannig hætti hérna. Annars er þetta bara búið að vera fínn dagur. Fór til Burbank að stússast. Fór síðan upp í skóla að ná í harða diskinn. Síðan hitti ég Paul. Er síðan að fara að hitta Helgu og Helgu núna á eftir í mat. Er síðan að fara að hjálpa Helgu næstu helgi líka :þ En er farin að láta myndirnar inn á ... Love Tinna

» 4 hafa sagt sína skoðun

12.05.2007 04:52:22 / tinna

Las Vegas á morgun :)

Klukkan er 22 og ég var að klára að pakka, er að fara til Las Vegas á morgun! Get ekki beðið. Verður svo gaman. Er að fara með Helgu og Helgu. En þær koma að sækja mig kl 9 þannig við verðum komnar um klukkan 13. Verðum á Caesar Palace í svítu, mjög næs. Annars ekki mikið að frétta. Hitti Paul á kaffi Aroma í gær. Það var rosa næs dagur. Hitinn búin að lækka niður í 26 þannig það var bara gott að sitja úti. Gerði ekki mikið í dag. Slakaði bara á. þvoði þvotta og svona. En já. Verður skrítið að keyra í gegnum eyðimörkina. Vona bara að ég lendi ekki í eitthverju ,,The Hills have eyse,, eða eitthvað. Paul var að segja mér sögurnar um sumar bensinstöðvarnar sem maður fer fram hjá. Úff.. nei nei þetta verður gaman. En jæja farin að horfa á tv. Reyna að fara snemma að sofa. Love Tinna

» 7 hafa sagt sína skoðun

09.05.2007 06:16:14 / tinna

37. stiga hiti úti ....

Jæja komin tíminn á nýtt blogg. Svo sem ekki mikið að frétta. Búið að vera frekar rólegt. Eða svonna. Gerði ekki mikið um helgina. Tók þvi bara rólega. Á föstudaginn tók ég nokkrar myndir með honum Martin sem leigir hérna en hann er að læra ljósmyndum. Gekk bara nokkuð vel. Getið tekkað á þeim á myndasíðunni minni. Í gær fór ég með Helgu í Kick Boxing tíma. Vinkona hennar er að læra það og var búin að bjóða okkar. Er eitt af bestu kick bosing sölum hérna í LA. Margar stjörnur búnar að traina þarna. En já þetta var ca 2 tíma tími og ég er að segja ykkur það. Þetta var svo erfitt. Vá .... svitnaði ekkert smá mikið. Og var náttlega að deyja í líkamanum í allan dag. Er búið að vera svo erfitt að hreyfa mig. Allir vöðvar svo aumir. Síðan í morgun vaknaði ég klukkan 10. Ætlaði að vakna kl 8 en svaf svona rosalega yfir mig. Ætlaði að hitta Paul klukkan 10 í businum. Þurftum að kaupa Hard Disk til að láta allt stuffið sem við höfum verið að leika í á. Lusinna fór með okkur. Vorum komin til Burbank um kl 12. Og það var svooooo heitt. VAR 37 STIGA HITI. Jabb... getið ýmundað ykkur hvernig okkur leið. Vorum að deyja. Við Paul keyptum Hard disk í RadioShack. En fengum frekar góðan díl. 200 Gb og $ 99 sem er ca. 7000 kr. Síðan fórum við upp í skóla með þetta og er að vona að ég fái þetta í næstu viku. Var komin heim um ca kl 17. En þá ákvað ég að fara út að hlaupa. Hélt að að það mundi líða yfir mig var svo heitt. úff .. Á samt sem betur fer að lækka á morgun. Ekki NEMA 33 stiga hiti. Annars ekki mikið að frétta. Er að fara til Las Vegas á laugadaginn. Held að það verði rosa gaman. Er að fara með Helgu, Helgu og Stínu. Já síðan er annar skógar eldur núna í gangi hérna. Frekar alvarlegt. Er í the Hollywood hills. Búið að ríma fullt af húsum. En hann er líka komin í The Griffitgarden. Þar eru fullt af stjörnum grafnar þarna og þetta er líka mjög fallegur garður. Er í fréttunum á öllum stöðum. En jæja er farin að horfa á tv. Love Tinna

» 1 hafa sagt sína skoðun

04.05.2007 17:37:08 / tinna

You .... !

Ok mamma að fríka út, verð að blogga smá :Þ Well. Búið að vera rosa skemmtileg vika. Á mánudaginn fór ég með Haley til Malibu, á ströndina. Fórum í svona 1 klukkutíma göngu. Það var rosa skemmtilegt en hún var að fara til Mississippi daginn eftir. Ég verð farin þegar hún kemur aftur. Á þriðjudaginn hitti ég Eyrúnu. En við höfðum ekki hisst í svoooo langan tíma. Við ákvaðum að taka heilan dag á þetta og skelltum okkur á Sunset. Það er samt svo fyndið að þegar við og Eyrún hittumst verðum við svo miklir aulabárðar. Héldum að við værum rétt hjá Sunset en þurftum að labba ógeðslega lengi, og báðar svo þrjóskar að við gáfumst ekki upp. En á endanum komumst við á aðalstaðinn á Sunset. Sveittar og svangar. Fórum á pizzustað þarna. Pizzan sem við fengum var svo stór að við tókum báðar doggy bag, nema við erum 100 % vissar að þjónustu stúlkan stal 2 pizzusneiðum frá okkur báðum. Hittum síðan Örnu sem náði að plata okkur á karioki bar daginn eftir :þ Á miðvikudaginn ákváðum við enn og aftur að slá öllu upp í kæruleysi og fara á kaffi Aroma. Það var rosa næs. Þetta er náttlega uppáhalds kaffhúsið mitt. Fengum okkur sjúklega köku. Eina sneið saman, en hún var svo sæt að við gátum ekki klárað hana. Sátum og vorum að rifja upp síðasta sumar. Langt síðan ég hef hlegið svona mikið. Já síðan allt í einu var íkorni kominn í tréið fyrir aftan mig. Þannig ég ákvað a gefa honum köku. Hann kom sko allveg á stólinn minn. Var svo sætur. Síðan kom hann aftur og aftur neinu sinni kom hann aðeins of nálægt og ég fríkað út, hann stokk næstum á bakið á mér. HAhahah .. þetta var svo fyndið. Nema um ca 17 fórum við heim til Eyrún að slaka á áðurn en við skelltum okkur á barinn. Skoðuðum myndir frá því við komum hingað. Reyndar slökuðum við eins og mikið á og gleymdum tímanum, þannig þegar Arna kom að ná í okkur um ca 20: 30 vorum við ekkert tilbúnar. Stukkum bara út. Náðum samt að henda nokkrum bjórum í töskurnar. Fyrst fórum við á stað sem hét Abby eða eitthvað svo leiðis. Hann var fínn. Við Eyrún vorum svo íslenskar, fórum inn á bað og drukkum bjórinn sem við áttum í töskunum. :Þ Held að það sé ekki hægt að vera íslenskari :Þ Síðan var farið á homma kariokibarinn. Það var rosa gaman. Hittum þarna gaura sem voru að vinna fyrir MTV. Allveg hreinnt yndislegir. Sástum öll saman, en vinkonur Örnu voru þarna líka. Reyndar frekar fyndið, vorum öll íslendingar. Ætla ekkert að fara neitt ofan í díteils en segjum bara að ég skemmti mér frábærlega ;) Eyrún takk fyrir gott djamm.. HAHHAHAH Síðan í gær. Gerði ég nú ekki mikið. Tók bara til og svona. Síðan um kl 17 kom Stína að ná í mig. En við fórum og keyptum indverskan og kíktum til Helgu. Horfðum síðan á 2 klukkustunda Greys A. þátt. Rosa gaman. Síðan núna var ég nú bara að vakna. Klukkan er 11. Er ekki að nenna að fara upp í skóla að byrja á ,, The reel,, verð samt að fara á morgun. Það er svo gott að gera ekki neitt :þ Á að fara upp í 32 stiga hita á sunnudaginn. Jabb. Frekar heitt. En ætla að reyna að drífa mig út að hlaupa.... Love Tinna

» 7 hafa sagt sína skoðun

30.04.2007 06:49:23 / tinna

Eplakaka

Ég er útskrifuð! Jabb ... jiminn er ekki að fatta það. Fekk dómana mína í gær. Var bara rosa sátt. Hefði ekki geta óskað mér betri dóma. Síðan kl 18 kom Haley að sækja mig og við fórum á the screening, en hún var haldin í Warner Brothers. Fyrst var sjálf útskriftin. Vorum kölluð upp á svið eitt á eftir öðru. Var svo skrítið að vera að kveðja alla. Síðan byrjaði sjálf screeningin. En þetta voru scene sem við tókum upp í april. Og voru svona,, professional,,. Var svooskrítið að sjá sjálfan sig upp á stóra skjánum. Jíminn..... frekar fyndin tilfining. En samt góð. Síðan þegar hún var búin var eftir party á skemmtistað á Santa Monica blvd. En NYFA hafði leigt svalirnar. Allir voru þarna. Kennararnir og svona. Reyndar fórum við Maja frekar snemma heim. Var svoo þreytt. Var komin upp í rúm kl 2. Svaf til kl 11 í morgun. Var yndislegt að sofa út. Reyndar vaknaði ég í eitthverju stresskasti. Var að stressast því ég hafði ekkert að stressast yfir. Gerði í raun ekki mikið í dag. Fór út að hlaupa, var frekar heitt í dag. Um ca 24 stiga hiti. Síðan tók ég til í herberginu og slakaði bara á. En um kl 16 kom var hringt dyrabjöllunni en þá var það Stína með risa blómvönd handa mér, því ég útskrifaðist í gær. Og hún bauð mér í mat til sín í kvöld. Um kl 19 kom Helga að ná í mig. Var rosa næs. Hún grillaði og síðan bakaði hún eplaköku í eftirmat. Rosa næs af henni. Síðan núna er kl ukkan 23 og ég er að horfa á The Family Stone og komin í svo mikið jólastuð. Frekar fyndið horfði á The Holiday í seinustu viku. Er að horfa á allar jólamyndirnar núna þegar það er sumar :þ Annars sögðu nokkrir kennararnir mínir mér að ég yrðu að sjá þessa mynd því ég væri fullkomin fyrir hlutverkið sem Sarah Jessica p. leikur. Frekar fyndið. :þ Síðan er það Malibu beach á morgun. Erum að fara nokkur saman. Held að það verði bara gaman :þ En er farin að horfa á myndina .... ÚU. bara 8 mánuðir til jóla

» 7 hafa sagt sína skoðun

27.04.2007 06:27:50 / tinna

The chowcase

Jæja þá er showcaisið mitt búið. Var í gær, og gekk bara frekar vel. Mættum upp í leikhús kl 10 og þá var rennt í gegnum öll scene. Fengum 30 min í mat og síðan var hitað upp fyrir fyrstu sýninguna. En hún var klukkan 15. Flestir úr skólanum koma þá, og líka þeir sem komast ekki um kvöldið. Held að það hafi líka veirð nokkrir castin directorar. Hann Andre kom á þessa. Hún gekk bara vel. Fannst samt seinni sýninginn betri. En hún var kl 20. Húsið var pakkað. Um klukkan 19:20 var fullt út úr húsi. Sem betur fer sagði ég Helgu og Stínu að koma snemma. Greyið Eyrún og vinir hennar þurftu að standa. Var svo fyndið að hafa eitthvern í salnum. Meina ég hef aldrei haft neinn í salnum þegar ég hef verið að sýna hérna í LA. En núna var mitt fólk þarna :Þ Já svona 1 tíma áður en eg fór á svið fyrir seinni sýninguna ákvað leikstjórinn minn að breyta scene. Já ! klukkutíma fyrir sýningu. Ekki bara ákvað hann að breyta línunum heldur líka the blockings, ( hvað eg er að gera á sviðinu) Var svoo stressuð að ég mundi gleyma þeim. En sem betur fer gekk allt vel. Mundi allar nýju breytingarnar. Og fólk hló , sem betur fer :Þ Var svo skrítið að stíga af sviðinu. Eftir á hitti ég alla. Var svo ánægð að Helga, Stína og Eyrun komu. Eftir á spjallaði ég við nokkra kennarna og þeir voru rosa stoltir. Leikstjórinn minn sagði að þetta væri erfiðasta scene. En sceneið sem ég leik heitir The Hat og er eftir David Mamet. Af hverju það er svona erfitt, er að eru bara ,,línur,, æjj frekar erfitt að útskýra það. En allvega þá gekk þetta vel. En við fáum dómana á laugadaginn. En já síðan var náttlega djammað í gær. Tanja var með partý en hún býr hliðinni á UCLA. Var voða gaman, allir náttlega blindfullir og svona. Var ekta ameriskt party. Löggan kom og svona bla bla. Rosa gaman. Gisti síðan hjá Haley. Vöknuðum kl 11. Var komin heim ca kl 13. Fór þá út í smá labbi túr. Var rosa gott veður úti. Efitr það kom ég heim og hef ekki gerti neitt að viti í dag. Bara notið þess að vera í fríi. Er núna að horfa á The Holiday. Oh þetta er svo sæt mynd :) Skóli á morgun, eða reyndar er þetta fyrirlestur. Klára um kl 13. Á að vera 27 stiga hiti á morgun. Síðan er skóli á laugadaginn, eða ekki skóli. Fáum dómanna okkar. Og seinna um kvöldið er the screening. Og útskriftin. Og síðan er ég búin. Vá .... á öruggleg eftir að gráta. Er náttlega orðin svo emotional :Þ Skellti nýjum myndum inn á. Frá þriðjudeginum þegar við fórum á kaffi Aroma. Og nokkrar frá eftir partýinu. En er farin. Love Tinna

» 9 hafa sagt sína skoðun

20.04.2007 00:30:51 / tinna

Stress .....

Klukkan er 17. Sit herna i skolanum. Allir farnir heim en eg sit herna a bokasafninu og er ad bida eftir ad klukkan verdi 18. En tha fer eg ad edita. Jabb er buin ad vera ad edita alla vikuna til klukkan 22. Er ad edita final scene en thad tharf ad vera tilbuid a sunnudaginn. Malid var ad thad var gaur sem aettladi ad edita fyrir okkur en gat thad sidan ekki. Thannig nuna sitjum vid Maja sveittar vid ad reyna ad edita. Og skal eg segja ykkur thad. Vid erum ekki godar. Sem betur fer er gaur i bekknum okkar sem er ad hjalpa okkur. Eda sko thegar hann getur. Er bara ad vona ad vid naum ad klara thetta fyrir sunnudaginn. Situm herna allan daginn a morgun, eda fra klukkan 9 - 21. Uff thad verdur sko langur dagur. Sidan er thad showcaisid mitt en thad er naesta midvikudag. Vorum i tima i dag og sem betur fer gekk vel. Thannig thad er allvega koma. Get lika slakad pinu a eftir sunnudaginn thegar scene er komin fra. Eins og thid sjaid er ekki mikid ad gerast hja mer nema skoli. Lif mitt er skoli , sofa , skoli sofa. Eina sem eg geri heima er ad sofa. En tho thetta se erfitt og eg se ad fa taugaafall tha er thetta ,,gott,/ gaman,, a sinn hatt. Er bara ad reyna ad njota thess ad vera herna, thvi ju thad er ekki nema ca 1 vika eftir. JIminn hugsa ser. Thetta er ad vera buid. Ohh ja sidan erum vid algjoru stressi med headshotin okkar. En thau thurfa ad vera tilbuin a manudaginn. Faum thad ekki fyrr en a morgun og stadurinn sem vid forum a er i west hollywood. Vitum ekkert hvernig vid eigum ad fara thangad. Ohh... en ok..dila vid thad a morgun. Annars er eg buin ad vera ad drekka camilute nuna a fullu en thetta er svona slakandi te. Mig alltaf ad dreyma thvilika vitleysu nuna, um rottur og vanpirur og Johhy D. Ja thetta er ekki edlilegt. En ok tharf ad fara ad edita .... Love Tinna

» 6 hafa sagt sína skoðun

14.04.2007 03:50:35 / tinna

If the walls could talk.....

Jæja komin tími á nýtt blogg. Páskarnir liðnir og svona. Klukkan er 21 hérna. Var léttur dagur í dag. Vaknað kl 9 fór út að hlaupa og fór síðan upp í skóla en sem betur fer var stuttur dagur. Kláruðum kl 14. Eftir á rölltum við Maja aðeins um en ég var kominn heim um kl 16. En þá var hún elskulega systir mín á skyp og ég spjallaði við familiuna í tvo tíma. Alltaf eftir að hafa talað á skyp er mér hugsað til gömlu tímana þegar ekki var hægt að hafa samskipti nema með bréfum :Þ En allavega. Þá er langur dagur á morgun. Frá kl 10 - 21. Meinser , Speech og Comedy. klukkan 21 kemur Helga síðan að ná í mig en við ætlum að fara út að borða. Held að það verði líka eitthvað feira fólk með okkur. Er ekki að fatta að þessi vika sé að vera búin. Leið ekkert smá hratt. Á ekki nema næstum 2 vikur eftir. Jíminn sko. 25 april er sjálft showcaseið. Og síðan 28 er The Final Screening in Warner B. og þar verður útskriftin. Ok verð að segja ykkur frá þessum þætti sem ég er að horfa á. Hann heitir ,,If the walls could talk,, Þetta er um hús og svona mysteries sem fylgja þeim. Þegar fólk sem flytur inn í þau eða eru að gera þau upp finnur hluti sem fygja húsinu. Eins og þetta par sem ég var að horfa á. Þau keypptu hús í Boston og ætluðu að gera það upp. Nema þegar þau byrjuðu fundu þau kjallar sem var fullur að gler flöskum, og það var bar niðri í einu herberginu nema hann var á rangri hlið, þannig þegar þú gekkst inn var hann ekki á móti þér. Og þegar þau fóru að brjóta niður veggi, sáu þau að þeir voru búnir til úr eitthverju efni sem þau þekktu ekki. Síðan fengu þau sérfræning og komsust af þvi að þetta var svona,, humm,, man ekki hvað þau kölluðu það. En þegar mafina réði ríkjum í Boston og það var bannað að selja áfengi. Kannski um 1920. Þá var Boston full af ólöglegum börum sem voru í heimahúsum. Og þau komust af því að allir frægu mafíosarnir í Boston drukku í húsinum þeirra. Þau töluðu líka við annan sérfræðing sem spurði þau hvernig gelflöskurnar litu út. En þær var rauðar og bláar og mjög mjógar , en þetta eru einmitt flöskurnar sem vínið var smiglað inn í. í dag eru þær eitt af dýrustu glerflöskunum og ekki hægt að finna þær, nema hjá hjónunum sem eiga heilan kjallara. Og veggirnir voru búnir til úr efni sem þá var mjög gott fyrir að einángra hljóð. Já þarna hafi þið það. Vona að ykkur að finnist þetta eins spennandi og mér. Ef ekki, þá er mér allveg sama ;) En jæja er farin að horfa á tv. Reyni að taka myndir Love Tinna

» 7 hafa sagt sína skoðun

09.04.2007 07:15:07 / tinna

Gleðilega páska, on the beach :þ

Jæja þá er ég búin að upplifa fyrstu páskana mín í LA. Og vonandi ekki þá síðustu. Frekar fyndið að vera ekki heima. Fá ekki heita súkkulaðið hennar mömmu. Sem er by the way það besta. Vaknaði kl ca 10 og tók því bara rólega. Spjallaði við familiuna heima á skyp. Síðan kom Helga heim um hádegið og við fórum í að búa til mat fyrir matarboðið sem við fórum í dag. En Helga bauð mér í mat til vina fólks hennar. Elduðum stanslaust í svona 2 tíma. En um ca kl 15 lögðum við á stað. En þau búa á Manhattan beach Sem er rétt hjá Santa Monica. Þau eru ný flutt í þetta hús. Og er að segja ykkur það. Mér leið eins og í OC. Meina þetta var allveg eins. Og sko húsin þarna. Mjög flott. En já síða sátum við bara í þarna í garðinum hjá þeim og grilluðum og drukkum moitos. Gat ekki kvartað :Þ Síðan eftir matinn fórum við í labbitúr á ströndinni. Mjög næs. Heyrði bara OC lagið hljóma í hausunum :Þ Annars ekki mikið að frétta. Var svoo langur dagur í gær. Fór samt með ,,the poem,, verkefnið. Gekk bara vel. Gott að vera búin með það. Síðan er þetta síðasti sunnudagurinn minn sem ég er í fríi eða síðasti dagurinn minn. Núna fram að 28. april verð ég alla daga í skólanum. Síðan flyt ég til Andre á morgun. Það verður fyndið að koma aftur til hans í kallaveldið :Þ En hey já á fimmtudaginn fór ég á minn fyrsta box game. Jabb, eða svona semi box game. Fórum einn og aftur með vinum Helgu. Keyrðum í svona 2 tíma. En þetta var haldið í casino sem er á leiðinni til Las Vegas. Vá sko að koma þarna. Þurftum að fara í gegnum securiti og láta myndavélarnar okkar í gleymslu, mátti ekki taka mynd. En síðan gegnum við inn í salinn. Var nú allveg frekar mikið að fólki. Fyrst gat ég ekki horft. Að sjá menn berja hvorn annan var ekki að gera sig, en því meira sem ég horfði því meira komst ég inn í leikinn og í endan var ég orðin svo æst að ég var byrjuð að hrópa og standa upp. Var svo fyndið að sjá mig. En allvega. Var að ákveða hvaða helgi ég ætla til Las Vegas. Get ekki beðið. Ætla að fara með Helgu. En jæja klukkan að verða 12. Sit hérna upp í sófa með hríspáskaeggið mitt sem mamma sendi mér. Kannski komin tími til að fara sofa. Skóli á morgun. Tinna

» 4 hafa sagt sína skoðun

31.03.2007 16:20:25 / tinna

Skógar eldar í Universal. 10 m. Frá skólanum mínum !

Klukkan er 9 hérna á laugadagsmorgni og ég er að bíða eftir farinu mínu. Skóli frá kl 10 - 21. Í gær voru skógareldar hérna í Universal. Reyndar var hann við skólann minn! The Hills voru að brenna. Eldurinn var í Univerasl eða the hills sem snúa að Universal. Á Barhamblvd og Forest law en þetta eru götunar sem skólinn minn er á. Þegar ég er í skólanum horfi ég upp í hæðrinar því við erum allveg við brúnina eiginlega. Maja sem býr svona 10 min frá skólanum hringdi og sagði mer að það væri kveiknaði í eitthvers staðar nálægt henni því hún sægi ekkert út fyrir reyk en síðan kveikti hún á frétttunum og sá að eldurinn var í 10 fjarlægð frá henni. Jabb. Skólinn var náttlega rýmdur og fleiri byggingar. Eldurinn kveiknaði um kl 13. Um kl 17 var búið að ná að slökkva hann. En vá svo þetta var ekkert smá óþægilegt að sjá þetta. Og get ég ekki ýmundað mér hvernig eigendum af Universal hafa liðið. Því það munaði ekki miklu að eldurinn færi í studion. Seinna um daginn gáfu tveir stákar sig fram. Þannig þetta var íkveikja. Frekar soglegt. Verður skrítið að koma upp í skóla á eftir. Tek myndavélina með mér og reyni að skella nokkrum myndum af. Ef ég næ. Annars ekki mikið að frétta. Er ekki allveg að nenna í skóla. í fyrsta tíma er Auditions Technique. Ekki það skemmtilegasta. Klára kl 21. En þá ætum við Helga að skella okkur í party til hans Andre. það veður fínt. Síðan er ég búin að bjóðast til að hjálpa Helgu á morgun. En hún er búin að vera á fullu að suma boli fyrir kynningu sem hún er með á morgun ásamt arkitektur vinum hennar. Þau eru búin að hanna eitthvað hús og hún verður líka þarna með boli sem hún er búin að hanna. Byrjar kl 10 og verður til ca kl 15. Það verður gaman að sjá hvernig það fer. Þarf nú ekki að gera mikið. Bara heilsa og brosa. Ætti nú ekki að vera mikið mál fyrir mig ;) En nú hlýtur Haley að fara að koma. Á ekki að vera það heitt í dag. Ekki nema 23 stiga hiti. En er farin. Já fæ einn frí dag núna um páskanna. Er í skólanum alla hina daganna. Gaman .... Tinna

» 3 hafa sagt sína skoðun

29.03.2007 05:40:04 / tinna

Calabasas .... what ? Were ?

Jíminn þessi dagur. Ok ætla að byrja á byrjuninni. Vaknaði kl 8 og gerði mig til því í dag fórum við Maja í headshotin okkkar. Ljósmyndarinn sem við völdum var með studioið sitt í Calabasa. En það er svona 45 frá Van nuys sem ég bý. Áttum að vera mættar kl 10 og sem betur fer gat Helga skutlað okkur ( hún er svo næs, er greyið alltaf að skutla mér eitthvað ) Nema síðan ætlaði roomatið hennar Maju að pikka okkur upp. Ljósmyndarinn sagði okkur að við mundum vera ca. 4 tíma að þessu því hann var að taka myndir af okkur báðum. Roommatið hennar Maju var búin í skólanum kl 16 en okkur fannst bara fínt að bíða á kaffihusi í 2 tíma. En ok. Headshotið gekk bara vel. Reyndar leyfði hann okkur ekki að sjá þær. En við hittum hann aftur í næstu viku til að sjá final myndirnar og ræða aðeins við hann því hann er líka manager og vildi ræða við okkur. Já það verður spennandi:Þ En allvega. Kláruðum kl 12. Og skelltum okkur á Starbucks. Ok síðan var klukkan orðin 17og við vorum ekkert búin að heyra í roomatinum. Búnar að labba um allt, reyndar var nú ekki mikið hægt að labba og við vorum með svo mikið að drassli. Nema, reyndum að hringja nokkrum sinnum en á endanum náðum við í hann, þá sagði hann okkkur að hann væri ekki búin og vissi ekki hvenar hann kláraði tökur. Vá sko.... ætlaði að öskra. Vorum búnar að hanga þarna í 4 tíma. Reyndum að hringja í eitthverja en eitthvern vegin var enginn að svara. Síðan kl 17:30 náðum við loksins í vinkonu hennar Majau og hún gat komið að ná í okkur. Vá meina við hengum þarna í 5 tíma!!!!!! Og talandi um dauðan stað. Vá sko. Það var ekkert þarna Ekkkert! Þetta eru kallaður svona alient town. Því það er eins og húsunum hafi verið hennt í middle of N. Og það er ekkert í kring. Fannst líka pínu eins og ég væri í The hill have eyse. Því það var ekkert nema svona hills þarna í kring. Fannst eins og ef ég færir út úr þessu ,, þorpi,, mundir ég deyja. Núna sit ég herna upp í sófa. Svooo þreytt að það hálfa væri nóg. Talandi um að eyða deginum í ekkert. En ok ... allavega. Skóli á morgun frá kl 10 - 21. Jabb langur dagur. Annars er ekki miki að frétta. Mánuður eftir af skólanum akkurat í dag. Jabb. April á pottþéttt eftir að líða hratt. Var hundleiðilegt veður í gær. Rigning og rok. Fannst eins og ég væri bara heima á góðum sumardegi. Reyndar eru eitthverjir vona vindar í gangi hérna núna. Var í fréttunum í dag að tré rifnuðu upp og eitthvað. Vona samt að ég sé ekki að lenda í eitthverju hvirfilvinda dæmi :/ En jæja er farin að horfa á idolið. Maður fær það beinnt í æð hérna. Kannski að ég reyni að fara snemma að sofa. Er samt svo erfitt. Love Tinna

» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5
chit--chat
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti